Persónuvernd

Listamenn, Skúlagötu 32, 101 Reykjavík, bera ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem berast í gegnum vefinn.

Hvað við fáum

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum form á vefnum, til dæmis um verðtilboð í innrömmun eða um umboðssölu, fáum við nafnið þitt, síma eða netfang, það sem þú skrifar og myndirnar sem þú sendir með.

Til hvers

Eingöngu til að svara fyrirspurninni. Við deilum upplýsingunum ekki með öðrum og notum þær ekki til að senda auglýsingar.

Hvar þær eru geymdar

Fyrirspurnin berst í tölvupósti á listamenn@listamenn.is. Hvorki hún né myndirnar eru geymdar á vefnum sjálfum. Vefurinn er hýstur hjá hysingar.is.

Hve lengi

Fyrirspurnum sem verða ekki að viðskiptum eyðum við úr pósthólfinu innan tveggja ára. Ef fyrirspurnin verður að viðskiptum geymum við reikninginn og það sem honum fylgir í sjö ár, eins og lög um bókhald krefjast.

Vafrakökur

Vefurinn notar engar vafrakökur til að fylgjast með gestum, og hann sækir hvorki kort, letur né myndir frá öðrum.

Réttindi þín

Þú getur beðið um að sjá upplýsingarnar sem við höfum um þig, látið leiðrétta þær eða eyða þeim með því að senda tölvupóst á listamenn@listamenn.is. Ef þér finnst ekki rétt farið með upplýsingarnar getur þú leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).